Í dag sáu krakkarnir í 2. bekk forvarnarleikritið Krakkarnir í hverfinu, sem er leikþáttur þar sem brúður eru notaðar til að fræða börnin um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi. Fræðslan felst í því að brúðurnar ræða saman um það sem þær hafa lent í. Stefán segir vini sínum frá því hvernig mamma hans lamdi hann stundum fast og hvernig þau fengu svo bæði hjálp eftir að hann sagði kennaranum sínum frá því.
Félagsráðgjafar frá FFR auk kennara voru viðstaddir sýninguna.
Brúðustjórnendur eru Hallveig Thorlacius og Helga Arnalds
Næstkomandi miðvikudag, þann 23. maí er námsmatsdagur. Þá fara fram foreldraviðtöl. Engin hefðbundin kennsla verður því í skólanum. Frístundarskólinn Akurskjól verður opinn frá 08:10 – 16:00 fyrir þau börn sem hafa sótt um það.
Listahátíð barna er samstarfsverkefni Listasafns Reykjanesbæjar og allra 10 leikskóla bæjarins og allra 6 grunnskólanna. Markmið hátíðarinnar er m.a. að safna saman á nokkra staði verkum sem sýna sköpunargleði barna í Reykjanesbæ svo íbúar bæjarins fái tækifæri til að sjá sköpunarmáttinn sem býr í börnunum okkar. Í grunnskólunum er unnið undir yfirskriftinni “Listaverk í leiðinni” en hún felur í sér fjölbreytta staðsetningu á verkunum. Listaverkin eru líka af öllu tagi og þar má sjá gott yfirlit yfir vinnu vetrarins , margvísleg vinnubrögð og óþrjótandi sköpunargleði barnanna í bænum. Akurskóli er með sýningu á Kaffitár og í Nettó.
Til foreldra/forráðamanna barna sem hafa verið skráð í 1. bekk í Akurskóla skólaárið 2012-2013
Við bjóðum ykkur velkomin á skólakynningu á sal Akurskóla miðvikudaginn 16. maí kl. 19:30. Deildarstjóri mun kynna stefnu skólans og umsjónarkennarar 1. bekkja munu segja frá starfinu sl. vetur. Einnig mun umsjónarmaður frístundaskóla Akurskóla, kynna vetrarstarfið þar.
Hlökkum til að sjá ykkur
Kær kveðja
Stjórnendur Akurskóla og kennarar 1. bekkja
Miðvikudaginn 9. maí fóru fyrstu bekkingar í vorferðalag. Förinni var heitið að sveitabænum Bjarteyjarsandi í Hvalfirði. Allir voru mjög spenntir og þó bílferðin væri löng þá leiddist engum. Sérstaklega var gaman að keyra um Hvalfjörðinn og leita að fallega flughvalnum sem við lásum um fyrir stuttu. Á Bjarteyjarsandi er mikill fjárbúskapur og vorum við svo heppin að á meðan við skoðuðum fjárhúsin sáum við tvö lömb fæðast. Mörgum fannst það skrýtin sjón en aðrir horfðu heillaðir á þegar ærin hreinsaði lömbin sín sem stóðu svo upp stuttu síðar og vildu fá að drekka. Í hlöðunni var hægt að klappa kanínum, hestum og lambi og leika sér í heyinu, sem sló í gegn hjá strákunum...